Hvaða dýrategundir henta í meðferðarleiðir með aðstoð dýra?
Það má segja að allar dýrategundir geti hentað í þetta starf. Það þarf að skoða hlutverk dýrategundanna, ásetning og markmið virkni eða meðferðar með aðstoð dýra og velja hentuga dýrategund eftir því. Einnig þarf að skoða nákvæmlega sérstaka eiginleika, þarfir og hæfni hvers dýrs fyrir sig með tilliti til þess hvort það er gagnlegt og skynsamlegt að nota dýrið í meðferðinni, hvort það hæfir verkefninu og markhópnum.
Dýrið þarf að sýna fram á góða félagslegi hæfni, það þarf að vera í góðu líkamlegu og heilsufarslegu ástandi. Persónuleiki dýrs og þjálfun þess þurfa að hæfa verkefninu.
Algengustu dýrategundirnar sem eru notaðar í virkni eða meðferð með aðstoð dýra eru hundar og hestar. Þar að auki eru kanínur, naggrísir og kisur gjarnan notuð. Það er einnig hægt að nota búfé en asnar og lamadýr eru dýr sem eru að bætast inn í þennan hóp meðferðaraðstoðardýra.
Mikilvægt er að muna ávallt eftirfarandi: Þegar við ákveðum að nýta dýr í okkar þágu, þá verðum við ávallt að virða dýrið sem lifandi og tilfinningaríka veru. Það fylgir því mikil ábyrgð að vinna með dýri, ekki einungis gagnvart skjólstæðingi heldur einnig gagnvart dýrinu sjálfu og það má aldrei gleyma því. Það má ekki ætlast til of mikils af dýrum. Hvert dýr þolir mismundi mikið álag og verður eigandinn að þekkja til þeirra marka. Við erum alltaf ábyrg fyrir vellíðan skjólstæðings og dýrs og verðum að gera ráðstafanir til að geta staðið við þessa ábyrgð..