Um vefinn
Ég heiti Daniela Gross. Ég er þýsk en hef búið á Íslandi síðan í desember 1999. Allt frá því að ég man eftir mér vildi ég hafa dýr í kringum mig, ég meira að segja bjargaði ánamöðkum úr vatnspollum (og geri það reyndar enn). Eftir stúdentsprófið árið 1995 vann ég í eitt ár á heimili fyrir fullorðið fatlað fólk. |
Eftir það fór ég í þýskan háskóla til að læra guðfræði, flutti til Íslands, fór í bændaskóla og var svo heppin að fá að vinna við búskap. En það var ekki fyrr en árið 2012 að ég ákvað að ég vildi tengja saman góð áhrif sem dýr hafa á menn og starfið mitt. Leiðin lá í Háskóla Íslands þar sem ég byrjaði í þroskaþjálfadeildinni. Ég kláraði þroskaþjálfanámið í júní 2015. Samhliða þessu námi hérlendis er ég í 60 eininga námi til sérhæfinga í meðferð með aðstoð dýra í viðurkenndri skóla í Þýskalandi. Þaðan mun ég væntanlega útskrifast í september 2015 sem "sérfræðingur í meðferðarleiðum með aðstoð dýra í þroskaþjálfun".
Þessi vefur er einskonar endir en jafnframt byrjun. Hann varð til sem BA-verkefnið mitt (og því endir) og fylgir honum greinagerð sem ber sama titilinn og vefurinn. Hægt er að nálgast greinagerðina hér á vefnum á skemman.is: http://hdl.handle.net/1946/22821
Vefurinn er einnig byrjun þar sem ég hef í hug að stækka hann hægt og rólega. Mig langar að kynna þetta efni enn betur, að kynna fleiri dýrategundir, að segja nánar frá sögu meðferðar með aðstoð dýra, að kynna rannsóknir, að segja frá skilyrðum sem maður og dýr þurfa að uppfylla o.fl.
Ég þakka þér fyrir áhugann og biðst velvirðingar ef íslenskan er ekki alls staðar 100% rétt eða falleg - ég fékk hjálp við að skrifa en þó leynast örugglega sumstaðar villur í íslensku málfari eða setningafræði þar á bak við.
Ef það vakna frekari spurningar eða þú vilt koma ábendingum á framfæri er hægt að hafa samband við mig:
Daniela Gross
Skólastíg 1
301 Akranes (Ísland)
+354-865 7133
Email: linus069(hja)gmail.com