Ofnæmi
Fyrst má nefna að ofnæmi fyrir ákveðnum dýrategundum útilokar ekki endilega verkefni með aðstoð dýra.
Þegar manneskju sem er með ofnæmi langar að taka þátt í virkni eða meðferð með aðstoð dýra þarf fyrst að greina fyrir hverju hún er nákvæmlega með ofnæmi og hversu sterkt það kemur fram. Ef einstaklingurinn vill taka þátt þó að hann sé með ofnæmi þarf meðferðaraðilinn að vita áður en meðferðin byrjar hvernig hann á að haga sér ef kemur til áfalls (t.d. þarf kannski að vera til ofnæmissprauta eða lyf). Einnig þarf að leggja enn meiri áherslu á hreinlæti meðan á heimsókninni stendur og eftir að hún er búin.
Það þarf að huga að efnunum sem kalla fram ofnæmisviðbrögð. Þau geta ekki einungis borið á milli í gegnum snertingu dýrs heldur geta þau líka flust á milli manna í fötum. Ef einstaklingur er með mikið ofnæmi getur verið að merðferðin verði að fara fram í herbergi sem er langt frá herbergi hans og hún má ekki heldur fara fram í sameiginlegu rými. Það þarf að forðast beina snertingu við dýrið. Í versta falli er ekki hægt að framkvæma virkni eða meðferð með aðstoð dýrs eða ef möguleiki er fyrir hendi er hægt að velja aðra dýrategund í verkefnið.
Ekki síst má benda á að það er einstaklingurinn sjálfur (eða foreldrar barns eða forráðamenn) sem, eftir náinni útskýringu meðferðaraðilans, samþykkja meðferðina skriflega.