Virkni með aðstoð dýra
Virkni með aðstoð dýra (e. Animal-Assisted Activity) eru frekar tilviljunarkenndar athafnir, þar sem áhugamenn ásamt gæludýrum sínum heimsækja fólk á ýmsum stöðum til að auka lífsgleði þeirra sem heimsóttir eru og lífga upp á tilveru þeirra. Heimsóknin er ekki fyrirfram skipulögð né er haldin skráning. Hvorki áhugamennirnir né dýrin þurfa að sækja sér menntun eða námskeið þótt það væri æskilegt.
Góð dæmi fyrir þessa meðferðarleið hérlendis eru hundaheimsóknavinir. Þetta verkefni er á vegum Rauða krossins og fara þá hundaeigendur ásamt hundum sínum í reglubundnar heimsóknir á stofnanir og heimili.