Hestar
Mynd: Martin Schemm/pixelio.de
Hestar eru dýr með hrifandi útgeislun. Þeir eru oft mjög viljugir til að vinna og afkastamiklir og eru oft metnir mikils hvað varðar félagslega og tilfinningalega sviðið. Þeir eru næmir og yfirleitt samvinnufúsir og námsfús dýr svo lengi sem maðurinn fer vel með þá og meðhöndlar þá eftir þörfum og getu þeirra.
Viðkvæm samskiptarhæfni annars vegar og stórfengleg og sterk líkamsbygging hins vegar, sem gerir manneskjum kleift að fara á hestbak, bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til notkunar á sviði uppeldi og merðferðar.
Hestar sem eru með traustan og jafnan persónuleika, sem eru vel tamdir og opnir gagnvart manninum og óhræddir, sem eru heilbrigðir og með nógu sterka líkamsbyggingu, geta farið í gegnum vandvirkt og áframhaldandi þjálfunarferli. Síðan geta þeir unnið sem meðferðaraðstoðardýr í mismunandi umhverfi.
Markmið sem hægt er að vinna að með aðstoð hests geta verið eftirfarandi: að stuðla að meiri líkamlegum eða sálrænum stöðugleika, vinna við félagsleg eða tilfinningaleg vandamál, stuðla að betra jafnvægi og vöðvaslökun eða hreyfingu milli staða. Þetta er oft mjög skemmtileg og mjög þörf reynsla sérstaklega fyrir fólk sem er t.d. bundið við hjólastól og getur ekki hreyft og fært sig milli staða af eigin krafti. Hestar geta aðstoðað við að kenna félagslega hæfni, s.s. að sýna virðingu og tillitsemi, að vera fús til samvinnu, að fara eftir reglum og virða mörk, að vera framsýnn og að taka ábyrgð. Þeir geta gefið nánd, veitt öryggistilfinningu og sýnt traust.
Það er mikilvægt að taka fram að stóðhestar eru yfirleitt ekki hæfir til vinnu á þessum sviðum út af kynferðislegum eiginleikum þeirra.
Góð dæmi hérlendis fyrir virkni með aðstoð hesta er hestbak fyrir fatlaða sem fer fram á vegum Hestamannafélags Harðar í Mosfellsbænum.