Hreinlæti og smithætta
Minnkað hreinlæti og hætta á að smitast af dýri er gagnrýni sem kemur oftast upp í sambandi við að taka dýr með á vinnustaðinn sinn eða inn á heimili annars fólks. En það er hægt að minnka þessa hættu verulega. Með því gera ráðstafanir fyrirfram hvað varðar hreinlæti og að fara eftir hreinlætisáætlun staðarins ef til er (s.s. að fara með hreint og þurrt dýr inn til fólks, að fara einungis eftir fyrirfram ákveðnum leiðum og að þrífa eftir sig og dýrið sitt eftir að tímanum lýkur), með því að fara í reglubundnar skoðanir og sprautur til dýralæknis og að ormahreinsa dýrið reglulega, minnkar smithætta töluvert. Einnig þarf að dýraeigandinn að skoða dýrið sitt fyrir hvern tíma og athuga hvort það sé heilsuhraust.
Í ákveðin herbergi má ekki fara, s.s. eldhús, matarbúr eða herbergi hjá fólki með ofnæmi fyrir dýrinu eða hreinlætisherbergi.
Ef fólk er með heiftarlegan sjúkdóm eða bráðasjúkdóm, eða ef á heimili eða stofnun er skæð baktería á ferð sem er ónæm fyrir sýklalyfjum (e. Multiple drug resistance) þá eru að sjálfsögðu engar forsendur fyrir að fara inn með dýrið.
Alltaf ber að hafa í huga að smitvegurinn er gagnkvæmur: Það er ekki einungis dýrið sem getur smitað mannfólkið heldur getur dýrið einnig smitast af mönnum og því þarf að vernda báða aðila jafn vel.