Meðferð með aðstoð dýra
Meðferð með aðstoð dýra (e. Animal-Assisted Therapy) er aftur á móti í frekar föstum skorðum. Hér er það ákveðinn meðferðaraðili sem vinnur með sína grunnmenntun eða á sínu fagsviði með aðstoð dýrs síns. Meðferðaraðilar geta t.d. verið læknar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar og þroskaþjálfar.
Dýrið er þýðingarmikill aðili í meðferðarferlinu. Meðferðaraðilinn og dýrið þurfa að hafa fengið ákveðna menntun og þjálfun. Meðferðartímar eru fyrirfram skipulagðir, gerð er einstaklingsáætlun fyrir hvern þátttakanda sem tekur mið af hans eigin getu, þörfum og óskum. Meðferðartímar stuðla að betri heilsu, hafa forvarnargildi og/eða styrkja endurhæfingu einstaklingsins. Þátttakendur geta verið fólk á ýmsum aldri með skerðingu á vitsmunalegu, félagslegu, sálrænu eða líkamlegu sviði. Einnig geta einstaklingar sem glíma við hegðunarvandamál tekið þátt í meðferð eða þeir sem þurfa á stuðningi eða örvun að halda. Fyrir hvern tíma eru sett upp markmið, haldin er skráning um meðferðarferlið og það er síðan árangursmetið.