Samanburður virkni og meðferðar með aðstoð dýra
Í töflu hér fyrir neðan er munurinn á virkni og meðferð með dýri settur fram í hnotskurn:
Virkni með aðstoð dýra
(e. Animal-Assisted Activity) ---------------------------------------------------------- Tilviljunarkenndar athafnir þar sem dýraeigendur heimsækja ásamt dýri sínu einstaklinga eða hópa fólks (á ensku "meet and greet activities") ----------------------------------------------------------------------- Engin nákvæm og skilgreind markmið ----------------------------------------------------------------------- Sama atburðarás eða athöfn getur nýst fleirum einstaklingum; athöfn er ekki einstaklingsmiðuð ----------------------------------------------------------------------- Ekki nauðsynlegt að halda utan um heimsóknina með skráningum ----------------------------------------------------------------- Inntak/efni heimsóknar er tilviljunarkennd ----------------------------------------------------------------------- Lengd heimsóknar er sveigjanleg, eins lengi og þátttakendur vilja eða hafa tíma |
Meðferð með aðstoð dýra
(e. Animal-Assisted Therapy) ---------------------------------------------------------- Þýðingarmikill hluti af ákveðinni meðferð fyrir fólk með skerðingu á líkamlegu, félagslegu, sálrænu eða vitsmunalegu sviði ----------------------------------------------------------------------- Nákvæmlega skilgreind markmið fyrir hvern tíma meðferðar ----------------------------------------------------------------------- Einstaklingsmiðuð meðferð fyrir hvern einstakling ----------------------------------------------------------------------- Framvinda er nákvæmlega skráð í hverjum meðferðartíma ----------------------------------------------------------------------- Gerð er áætlun fyrir hverja meðferðarstund; yfirleitt eru fleiri tímar sem mynda eina heild ----------------------------------------------------------------------- Lengd meðferðar er fyrirfram ákveðin með því að taka mið af þörfum og getu þátttakandans |