Hætta á meiðslum af völdum dýra
Áhættuþættir eru hér aðallega að dýrið getur bitið eða klórað þátttakandann eða að hann detti á dýrið eða dýrið felli þátttakandann.
Það er hægt að fyrirbyggja bit og klór býsna mikið með því að vanda sig mjög með val dýrsins. Það á augljóslega ekki að velja ráðrík eða árásargjörn dýr í þetta starf. Einnig þarf meðferðaraðilinn vera ábyrg manneskja, hann þarf að hafa reynslu af umgengni við dýr. En fyrst og fremst þarf hann að þekkja dýrið sitt og það þurfa að vera sterk og örugg tengsl á milli þeirra. Ef það ríkir gagnkvæmt traust milli eigandans og dýrsins og eigandinn þekkir dýrið sitt inn og út, þá getur hann séð á dýrinu þegar því líður illa og hætta á óæskilegri hegðun eykst. Þá ber honum að taka dýrið sitt um leið úr aðstæðunum, til verndar þátttakandans, en einnig til verndar dýrsins sem treystir því að eigandinn höndli erfiðar aðstæður fyrir það.
Til að minnka hættuna á því að einstaklingur detti yfir dýrið þarf einnig að vanda val dýrs með tilliti til markhópsins. Ef það á að vinna t.d. á elliheimili, þarf að velja rólegt dýr sem er sérstaklega vel uppalið og hlýðið. Það þarf að vera hægt að geta sent dýrið í einskonar athvarf (t.d. teppið sitt).
Til að gefa dæmi er fróðlegt að segja frá rannsókn sem Delta Society stóð fyrir (sem er virt félag sem er ekki rekið í hagnaðarskyni og tileinkar sér rannsóknir á virkni og meðferð með aðstoð dýra). Í 10.000 heimsóknar- og meðferðartímum voru einungis skráð 19 slys. Þar af voru tveir einstaklingar með beinbrot, sem var það versta sem kom fyrir.